Fiskar.is — Eldisbúnaður

Hágæða búnaður fyrir fiskeldi

Fiskar.is starfar með leiðandi sérfræðingum um allan heim að því að nýta byltingarkennda tækniþróun í fiskeldi og öðru lagareldi — með faglegri þjónustu fyrir íslenska eldisaðila frá ráðgjöf til eftirfylgni.

ANB Sensors

AQ2-línan — næsta kynslóð nema

Kvörðunarlausir nemar fyrir pH, leiðni, hitastig og seltu. Þeir virka á allt að 50 metra dýpi í fersk- og saltvatni, eru harðgerðir og með lágan viðhaldskostnað — allt að 70% sparnaður samanborið við rekstur hefðbundinna mæla.

Nánar um ANB Sensors

Vörur

Mælitæki og eftirlitsbúnaður frá traustum framleiðendum — valin fyrir íslenskar aðstæður.

Þjónusta frá ráðgjöf til eftirfylgni

Búnaðurinn segir aðeins hálfa söguna — við fylgjum honum eftir alla leið inn í reksturinn þinn.

Ráðgjöf og val á búnaði

Við förum yfir aðstæðurnar í eldisstöðinni þinni — sjór eða ferskvatn, ker eða kvíar — og finnum búnað sem hentar verkefninu og fjárhagsáætluninni.

Uppsetning og samþætting

Nemar og stýringar þurfa að tala saman. Við aðstoðum við uppsetningu, tengingar (t.d. RS-485 Modbus) og samþættingu við vöktunarkerfin sem þú notar nú þegar.

Þjónusta eftir sölu

Varahlutir, rekstrarvörur, kvörðun og bilanagreining — við svörum í símann þegar á þarf að halda og útvegum íhluti beint frá framleiðendum.

Samstarfsaðilar

Við veljum framleiðendur sem standast kröfur fiskeldis: áreiðanleika, endingu og góða þjónustu.